Formúla 1

Liðs­fé­lagarnir fremstir eftir tíma­tökur í Japan

Smári Jökull Jónsson skrifar
Sergio Perez og Max Verstappen sultuslakir í Japan.
Sergio Perez og Max Verstappen sultuslakir í Japan. Vísir/Getty

Max Verstappen verður á ráspól þegar Formúlu 1 keppnin í Japan fer fram í nótt. Kappaksturinn í nótt verður sýndur beint á Vodafone Sport.

Max Verstappen hefur unnið tvo af fyrstu þremur kappökstrum tímabilsins en Carlos Sainz á Ferrari varð fyrstur í þeim þriðja í Ástralíu fyrir tveimur vikum síðan.

Verstappen virtist ætla að tryggja sér ráspólinn nokkuð örugglega í nótt eftir yfirburði í fyrstu tveimur hlutum tímatökunnar. Á síðasta hring náði liðsfélagi hans Sergio Perez hins vegar frábærum hring og kom í mark á aðeins 0,066 sekúndum lakari tíma en Verstappen. Liðsfélagarnir í Red Bull verða því tveir fremstir þegar kappaksturinn fer af stað í nótt.

Lando Norris á McLaren náði þriðja sætinu á undan áðurnefndum Sainz á Ferrari.

Mercedes náði ekki að fylgja eftir ágætu gengi á æfingum. Lewis Hamilton náði sjöunda sætinu og verður í fyrsta skipti á tímabilinu framar en liðsfélagi hans George Russell þegar keppni fer af stað.

Topp 10 listinn:

1. Max Verstappen, Red Bull

2. Sergio Perez, Red Bull

3. Lando Norris, McLaren

4. Carlos Sainz, Ferrari

5. Fernando Alonso, Aston Martin

6. Oscar Piastri, McLaren

7. Lewis Hamilton, Mercedes

8. Charles Leclerc, Ferrari

9. George Russell, Mercedes

10. Yuki Tsunoda, RB

Formúlu 1 kappaksturinn í Japan verður í beinni útsendingu á Vodafone Sport í nótt. Útsending hefst klukkan 4:30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×