Formúla 1

For­seti FIA hreinsaður af á­sökunum um hag­ræðingu úr­slita

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Mohammed Ben Sulayem ræðir hér við heimsmeistarann Max Verstappen. Þeir munu eitthvað eiga í samskiptum áfram.
Mohammed Ben Sulayem ræðir hér við heimsmeistarann Max Verstappen. Þeir munu eitthvað eiga í samskiptum áfram. Eric Alonso/Getty Images

Forseti alþjóðaakstursíþróttasambandsins (FIA), Mohammed Ben Sulayem, hefur verið hreinsaður af ásökunum um hagræðingu úrslita í kappökstrum í Sádi-Arabíu og Las Vegas á síðasta ári. 

Meintar ásakanir í hans garð voru að hann hafi reynt að koma í veg fyrir að keppt yrði í Las Vegas undir lok síðasta tímabils og að hafa haft ítök í því að fella niður tíu sekúndna refsingu sem Spánverjinn Fernando Alonso, ökumaður Aston Martin, fékk í kappakstrinum í Sádi-Arabíu á síðasta ári. 

Báðar ábendingar komu frá nafnlausum uppljóstrara. 

Ben Sulayem var sakaður um að hafa haft hringt í Sheik Abdullah bin Hamad bin Isa Al Khalifa, varaforseta FIA í íþróttamálum í Miðausturlöndum og Norður-Afríku, sem var staddur í Sádi-Arabíu þegar keppnin fór fram. Ben Sulayem á þá að hafa látið skoðun sína í ljós við kollega sinn um að honum hafi þótt að refsingin skyldi dregin til baka. 

Sami uppljóstrari sakaði forsetann um að reyna koma í veg fyrir að keppt yrði í Vegas undir lok síðasta keppnistímabils en 24. keppni tímabilsins, af 25, fór fram í Vegas í Bandaríkjunum. 

Aga- og úrskurðarnefnd FIA fann hins vegar „engin rök eða sannanir sem studdust við ásakanir um afskipti eða íhlutun“. Rannsókn málsins tók 30 daga og 11 vitni voru kölluð til yfirheyrslu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×