Formúla 1

Stefnir í spennandi keppni í Bar­ein: „Nánast ekkert þarna á milli“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þessir þrír byrja fremstir í Barein.
Þessir þrír byrja fremstir í Barein. EPA-EFE/ALI HAIDER

Þrátt fyrir að Max Verstappen sé á ráspól í fyrstu keppni ársins í Formúlu 1 þá búast sérfræðingar við jafnari keppni en á sama tíma í fyrra.

Nýtt tímabil í Formúlu 1 fer formlega af stað á morgun, laugardag. Verður keppnin í beinni útsendingu Vodafone Sport. Verstappen hefur undanfarin þrjú tímabil staðið uppi sem sigurvegari og þá hefur félag hans RedBull borið af í keppni bílasmíða. 

Það má þó búast við spennandi keppni á morgun ef marka má þá Kristján Einar Kristjánsson og Braga Þórðarson en þeir lýsa íþróttinni hér á landi.

„Ég held að við séum að fara sjá mjög áhugaverða keppni. Ferrari, Mercedes, McLaren og Aston Martin öll búin að vera vinna í þessum hlutum (keppnishraðanum). Geggjað að lengsta tímabil sögunnar sé byrjað,“ sagði Kristján Einar.

„Á þessum tíma í fyrra voru RedBull með 0,6 sekúndur í forskot á alla aðra. Núna er bilið 0,1 þannig það er nánast ekkert þarna á milli,“ bætti Bragi við. Viðtal við þá félaga úr kvöldfréttum Stöðvar 2 má sjá hér að neðan.

Fyrsta keppni ársins í Formúlu 1 hefst klukkan 15.00 en útsending Vodafone Sport hefst klukkan 14.30.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×