Formúla 1

For­setinn reyndi að koma í veg fyrir að keppt yrði í Vegas

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Mohammed Ben Sulayem (til vinstri).
Mohammed Ben Sulayem (til vinstri). EPA-EFE/ALI HAIDER

Mohammed Ben Sulayem, forseti FIA - Alþjóða akstursíþróttasambandsins, er til rannsóknar vegna meintrar tilraunar til að eiga við úrslit í Formúlu 1 á dögunum. Hefur forsetinn nú verið ásakaður um að reyna koma í veg fyrir að keppt yrði í Las Vegas undir lok síðasta tímabils.

Á dögunum barst FIA ábending frá ónafngreindum uppljóstrara þar sem Ben Sulayem er sakaður um að hafa haft ítök í því að fella niður tíu sekúndna refsingu sem Spánverjinn Fernando Alonso, ökumaður Aston Martin, fékk í kappakstrinum í Sádi-Arabíu á síðasta ári.

Sami uppljóstrari hefur nú sakað forsetann um að reyna koma í veg fyrir að keppt yrði í Vegas undir lok síðasta keppnistímabils en 24. keppni tímabilsins, af 25, fór fram í Vegas í Bandaríkjunum.

BBC, breska ríkisútvarpið greindi frá en ekki kemur fram hvers vegna Ben Sulayem vildi að keppninni í Vegas yrði frestað eða aflýst. Í frétt BBC er ýjað að því að það hafi eitthvað með samningamál Formúlu 1 að gera.

Undanfarin tvö ár hefur mikil spenna ríkt á milli Liberty Media, fyrirtækisins sem á áauglýsingarétt F1, og FIA. Á þeim tíma hefur Ben Sulayem oftar en einu sinni reynt að sækja meira fjármagn úr F1 fyrir FIA.

Sem stendur fær FIA 40 milljónir Bandaríkjadala, fimm og hálfan milljarð íslenskra króna, á ári fyrir að sjá um lagasetningu F1.

Talsmaður F1 neitaði að tjá sig þegar BBC hafði samband.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×