Formúla 1

Samningar í höfn við Indanapolis

Michael Schumacher hefur sigrað í Indianapolis síðustu tvö ár
Michael Schumacher hefur sigrað í Indianapolis síðustu tvö ár NordicPhotos/GettyImages

Nú er ljóst að Formúla 1 verður áfram í boði í Bandaríkjunum, í það minnsta í eitt ár í viðbót, eftir að forráðamenn Indianapolis-kappakstursins náðu samkomulagi við Bernie Ecclestone um mótshald þar á næsta ári.

Bandaríkjakappaksturinn hefur átt undir högg að sækja á síðasta ári eftir hneykslið sem átti sér stað í keppninni þar í fyrra, þegar aðeins sex bílar tóku þátt eftir að öðrum þótti brautin ekki standast öryggiskröfur.

Forráðamann Indianapolis eru hæst ánægðir með samninginn og eru bjartsýnir á framhaldið, þó útlit sé fyrir að Formúla 1 nái aldrei að verða það risafyrirbæri þar í landi og annarsstaðar í heiminum.

Fyrst var keppt í Formúlu 1 í Indianapolis árið 2000 og er keppni næsta árs fyrirhuguð á þjóðhátíðardag Íslendinga þann 17. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×