Formúla 1

Aðeins eitt takmark á Monza

Fernando Alonso vill ná í sigur á heimavelli Ferrari
Fernando Alonso vill ná í sigur á heimavelli Ferrari NordicPhotos/GettyImages

Heimsmeistarinn Fernando Alonso segir að Renault-liðið sé aðeins með eitt takmark fyrir Ítalíukappaksturinn um næstu helgi og það sé að koma í mark á undan heimamönnum í Ferrari.

Alonso náði að auka forskot sitt á toppi stigalista ökumanna í Tyrklandskappakstrinum með því að ná öðru sæti, á meðan Michael Schumacher náði þriðja sætinu. Þar var það Felipe Massa hjá Ferrari sem vann sinn fyrsta sigur og hefur ítalska liðið verið á ágætum spretti undanfarið.

"Á þessu ári er ég búinn að vinna á Silverstone, í Mónakó og á Spáni, svo auðvitað langar mig mikið að vinna á Monza-brautinni. Það er sögufræg braut og það yrði auðvitað gríðarlega sterkt fyrir okkur að ná að leggja Ferrari á þeirra heimavelli - þó vitanlega verði það mjög erfitt.

Það er aðeins eitt atriði sem er okkur efst í huga um þessar mundir og það er að koma í mark á undan Ferrari. Ferrari liðið hefur verið í miklu stuði í undanförnum keppnum og því er nokkuð ljóst að til þess að hafa betur gegn þeim, verðum við einfaldlega að koma fyrstir í mark," sagði heimsmeistarinn ungi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×