Formúla 1

Raikkönnen klár í slaginn

Kimi Raikkönen
Kimi Raikkönen NordicPhotos/GettyImages

Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen hjá McLaren hefur nú gefið það út að hann sé við hestaheilsu og búinn að jafna sig af bakmeiðslum sem höfðu verið að angra hann síðan hann lenti í óhappi í Tyrklandskappakstrinum á dögunum. Raikkönen segist í toppstandi og tilbúinn í Ítalíukappaksturinn á Monza um næstu helgi.

"Ég var aumur í bakinu og ákvað því að taka mér smá hvíld frá æfingum. Ég er nú í góðu standi og leit þannig á að það væri mikilvægara að vera orðinn góður fyrir kappaksturinn sjálfan en æfingarnar í vikunni. Bíllinn er alltaf að verða betri og því vonast ég til að geta veitt fremstu mönnum meiri keppni á Ítalíu en ég gerði í Istanbul," sagði Finninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×