Formúla 1

Raikkönen fer til Ferrari

Kimi Raikkönen
Kimi Raikkönen NordicPhotos/GettyImages

Flavio Briatore segist vera búinn að gefast upp á að reyna að fá finnska ökuþórinn Kimi Raikkönen til Renault-liðsins, því hann sé þegar búinn að gera munnlegt samkomulag um að ganga í raðir Ferrari og segir að þar verði hann eftirmaður Michael Schumacher á næsta tímabili því Þjóðverjinn muni tilkynna að hann sé hættur um helgina.

"Það var okkar draumur að fá Kimi til liðs við okkur en hann er greinilega löngu búinn að semja við Ferrari, svo við verðum bara að keppa við hann á næsta tímabili í stað þess að hafa hann í okkar liði," sagði Briatore.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×