Formúla 1

Renault segir pressuna mikla á Schumacher

Michael Schumacher
Michael Schumacher NordicPhotos/GettyImages

Pat Symonds, yfirmaður tæknimála hjá Renault, segir að Fernando Alonso standist pressu betur en Michael Schumacher og telur meistaralið Renault eiga betri möguleika til að ná góðum árangir um næstu helgi þegar keppt verður í Kína.

Symonds vann með Schumacher þegar hann ók fyrir Benetton á sínum tíma og telur Alonso standast pressu betur en Schumacher. Titilslagurinn verður gríðarelga harður í síðustu þremur keppnunum og Symonds bendir á að Schumacher hafi ekki riðið feitum hesti frá keppnunum tveimur sem háðar hafa verið í Kína.

"Kínakappaksturinn hentar Renault mjög vel og það sem meira er, hefur Michael Schumacher gengið afleitlega þar síðustu tvö ár. Það þarf ekki að taka það fram að þeir Scumacher og Alonso eru báðir frábærir ökumenn, en ég trúi því í alvöru að Alonso sé betri undir pressu.

Schumacher hefur oft ekki staðist álagið þegar mikil pressa hefur verið á honum í gegn um tíðina og ég veit að pressan verður meiri en nokkru sinni fyrr á hann í þessum síðustu keppnum. Áður gat hann alltaf treyst á næsta ár - en nú er ekkert næsta ár fyrir hann ef hann vinnur ekki," sagði Symonds.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×