Formúla 1

Þýsku brautirnar skipta með sér keppnum

Michael Schumacher er hér á ferðinni í Mónakókappakstrinum
Michael Schumacher er hér á ferðinni í Mónakókappakstrinum NordicPhotos/GettyImages

Nú hefur verið tilkynnt að þýsku kappakstursbrautirnar Nurburgring og Hockenheim muni skipta með sér mótshaldi í Formúlu 1 næstu fjögur árin. Þetta þýðir að keppnin á næsta ári fer fram á Nurburgring og svo aftur árið 2009, en 2008 og 2010 verður Þýskalandskappaksturinn haldinn á Hockenheim.

Þýskalandskappaksturinn hefur verið haldinn á báðum vígstöðvum síðastliðin 11 ár, en áhorfendum hefur fækkað jafnt og þétt á þessar keppnir að undanförnu og búist er við að þeim fækki enn frekar á næsta ári þegar þjóðhetjan Michael Schumacher leggur stýrið á hilluna.

Mótalistinn í Formúlu 1 lítur því svona út fyrir árið 2007:

18 Mars: Ástralía (Melbourne)

8 Apríl: Malasía (Sepang)

15 Apríl: Bahrein (Manama)

13 Maí: Spánn (Barcelona)

27 Maí: Mónakó (Monte Carlo)

10 Juní: Kanada (Montreal)

17 Juní: Bandaríkin (Indianapolis)

1 Julí: Frakkland (Magny-Cours)

8 Julí: Bretland (Silverstone)

22 Julí: Þýskaland (Nurburgring)

5 Ágúst: Ungverjaland (Budapest)

26 Ágúst: Tyrkland (Istanbul)

9 September: Ítalía (Monza)

16 September: Belgía (Spa)

30 September: Kína (Shanghai)

7 Október: Japan (Fuji)

21 Október: Brasilía (Interlagos)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×