Formúla 1

Schumacher heiðraður í Brasilíu

Michael Schumacher
Michael Schumacher AFP

Þýski ökuþórinn Michael Schumacher tekur um næstu helgi þátt í sínum síðasta kappakstri á ferlinum þegar lokamót ársins fer fram í Brasilíu og þar verður hann heiðraður sérstaklega af knattspyrnugoðsögninni Pele.

Schumacher á enn fræðilega möguleika á því að landa sínum áttunda heimsmeistaratitli á ferlinum, en Pele mun afhenda honum sérstaka viðurkenningu fyrir glæstan feril að keppninni lokinni.

"Það er mér mikill heiður að fá að afhenda Schumacher þessi viðurkenningu fyrir hönd brasilísku þjóðarinnar. Hann hefur verið stærsta nafnið í Formúlu 1 í mörg ár og hann er komandi kynslóðum góð fyrirmynd," sagði Pele.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×