Formúla 1

Vöxtur Ferrari er helsta afrek Schumacher

Michael Schumacher
Michael Schumacher NordicPhotos/GettyImages

Fyrrum þrefaldur heimsmeistari í Formúlu 1, Sir Jackie Stewart, segir að sjö heimsmeistaratitlar séu ekki merkasta afrek Michael Schumacher í Formúlu 1 - heldur sú staðreynd að hann eigi stærstan þátt í að gera lið Ferrari að því stórveldi sem það er í dag.

"Auðvitað eigna ég Schumacher ekki allan heiðurinn að þessu, en drifkraftur hans og keppnisskap er smitandi og hefur klárlega mikið að segja í þessu sambandi. Vissulega hafa liðsstjórar, forsetar og tæknimenn vegið þungt í árangri liðsins, en ég held að það hefði aldrei ná svo langt án Schumacher. Hann stokkaði upp í liðinu þegar hann kom þangað á sínum tíma og gerði Ferrari að bílnum sem hann er í dag."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×