Formúla 1

Sonur Schumacher efnilegur

Michael Schumacher á ekki von á því að sonurinn feti í fótspor sín
Michael Schumacher á ekki von á því að sonurinn feti í fótspor sín NordicPhotos/GettyImages

Þýska dagblaðið Express í Cologne segir að þó nú sé aðeins einn Schumacher að keppa í Formúlu 1, gæti það átt eftir að breytast í framtíðinni því sjö ára gamall sonur Michael Schumacher sé mikið efni.

Vinur Michael Schumacher frá því hann hóf ferilinn sem ökumaður hefur haldið því fram að Mick sonur hans sé þegar farinn að sýna góða tilburði við stýrið og gerir því skóna að í framtíðinni verði sonurinn ökumaður hjá liði í Formúlu 1 á meðan faðir hans verði framkvæmdastjóri liðsins.

Schumacher sjálfur er þó lítt hrifinn af þessari hugmynd. "Það yrði óbærileg pressa á drenginn að komast út úr skugga mínum," sagði pabbinn, sem ók sinn síðasta kappakstur í Brasilíu um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×