Formúla 1

Ecclestone veldur titringi á Silverstone

Bernie Ecclestone hugsar fyrst og fremst um að græða peninga og lætur sér hefðir að litlu varða þegar kemur að því að maka krókinn
Bernie Ecclestone hugsar fyrst og fremst um að græða peninga og lætur sér hefðir að litlu varða þegar kemur að því að maka krókinn NordicPhotos/GettyImages

Formúlumógúlnum Bernie Ecclestone er ekkert heilagt þegar kemur að því að auka veg og virðingu íþróttarinnar og nú hefur hann valdið mótshöldurum breska kappakstursins á Silverstone hugarangri með framtíðaráformum sínum.

Ecclestone hefur farið þess á leit við rekstraraðila Silverstone að brautin í Norðhamptonskíri verði endurbætt og löguð til að standast gæðakröfur, en enskir segja það muni kosta hundruði milljóna punda. Silverstone er elsta brautin sem keppt er á í Formúlu 1 en fyrst var keppt á henni fyrir 56 árum síðan.

Núverandi samningur Silverstone rennur út árið 2009, en Ecclestone hefur boðið Englendingunum að halda keppnina annaðhvert ár á móti Frökkum og hefur það vakið litla hrifningu enskra. Þá er Ecclestone með áform á prjónunum um að keppa jafnvel á Indlandi árið 2010 og segir að þar sé þegar búið að finna brautarstæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×