Formúla 1

Formúla 1 er ekkert barnaafmæli

Michael Schumacher
Michael Schumacher NordicPhotos/GettyImages

Michael Schumacher segist ekki hafa hlotið neina sérmeðferð þau ár sem hann var ökumaður númer eitt hjá Ferrari eins og margir hafa meinað, heldur segist hann hafa unnið fyrir því með því að vera einfaldlega fljótari en félagi sinn hverju sinni.

Lengi hefur verið pískrað um það í Formúlu 1 að Schumacher hafi neitað að skrifa upp á samninga við lið Ferrari nema gegn því að hann yrði alltaf ökumaður númer eitt hjá liðinu - og talað hefur verið um að annar ökumaður liðsins hafi fengið lakari þjónustu frá liðinu á þeim árum sem hann ók rauða bílnum.

"Ég heimtaði aldrei að vera ökumaður númer eitt - hvorki munnlega né skriflega. Ég sé þetta einfaldlega þannig að báðir ökumenn byrja með hreint borð í upphafi hvers tímabils og fljótlega kemur í ljós hvor þeirra er betri ökumaður og þá verður liðið að styðja við bakið á ökumanninum sem á betri möguleika á titlinum. Annað væri bara asnalegt, enda er formúlan ekkert barnaafmæli," sagði sjöfaldur heimsmeistarinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×