Formúla 1

Hakkinen útilokar ekki frekari akstur

Hakkinen var með lakasta tímann á æfingum í vikunni
Hakkinen var með lakasta tímann á æfingum í vikunni NordicPhotos/GettyImages

Fyrrum heimsmeistarinn Mika Hakkinen frá Finnlandi útilokar ekki að hann muni aðstoða McLaren liðið frekar með tilraunaakstri en hann ók nokkra hringi fyrir liðið í vikunni.

"Það er ekkert útilokað í þeim efnum, en við eigum eftir að setjast niður og ræða málin," sagði Finninn, sem varð heimsmeistari með liðinu 1998-99. Hann segir að menn hafi ætlast til mikils af sér eftir fimm ára fjarveru úr Formúlu 1.

"Menn bjuggust kannski við því að ég færi strax að slá met um leið og ég settist við stýrið, en ég var nú ekkert að þenja mig eftir allan þennan tíma, enda hefði það verið ákaflega heimskulegt. Ég ætla ekki að vera að standa bílinn flatan og taka áhættu á því að skemma hann," sagði Finninn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×