Formúla 1

Renault ætlar ekki að sleppa Alonso

Alonso fær ekki að fara til McLaren fyrr en áætlað var
Alonso fær ekki að fara til McLaren fyrr en áætlað var NordicPhotos/GettyImages

Flavio Briatore, liðsstjóri Renault í Formúlu 1, segir ekki koma til greina að liðið leyfi heimsmeistaranum Fernando Alonso að losna undan samningi sínum við liðið fyrr en um leið og hann rennur út um áramótin. Litlir kærleikar eru milli forráðamanna Renault og McLaren, en Alonso gengur til liðs við McLaren um áramót.

Liðsstjóri McLaren greindi frá því á dögunum að mikill áhugi væri fyrir því að fá Alonso strax um borð í McLaren bílinn og að hann fengi að prófa hann fyrir áramótin þegar samningur hans við Renault rennur út og hann verður formlega liðsmaður McLaren.

Briatore hefur hinsvegar blásið á þessa ráðagerð McLaren-manna. Ef McLaren menn vildu fá hann strax yfir til sín, held ég að þeir hafi sent þá beiðni á rangt heimilisfang. Þeir hefðu kannski átt að tala beint við okkur, frekar en að biðla til okkar í blöðum. Ég er búinn að senda Alonso jóla- og nýárskveðjur og vona að hann hafi það gott yfir hátíðarnar - því við munum gjörsigra hann og hans menn með vorinu," sagði Briatore ákveðinn í samtali við Gazzetta dello Sport á Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×