Formúla 1

Button er einn af þremur bestu ökumönnunum

Jenson Button á framtíðina fyrir sér að mati liðsstjóra Honda
Jenson Button á framtíðina fyrir sér að mati liðsstjóra Honda NordicPhotos/GettyImages

Nick Fry, liðsstjóri Honda í Formúlu 1, segir að breski ökuþórinn Jenson Button sé einn af þremur bestu ökumönnunum heimsins í dag ásamt þeim Kimi Raikkönen og heimsmeistaranum Fernando Alonso.

Button vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 í ágúst þegar hann kom fyrstur í mark í Ungverjalandi og það var jafnframt eini sigurinn sem ekki kom í hlut Ferrari eða Renault allt tímabilið.

"Ég trúi því að Jenson sé á sama stalli og Alonso og Raikkönen sem besti ökumaðurinn í Formúlu 1 í dag. Aðrir ökumenn eiga það til að standa sig ágætlega annað veifið, en Button er mjög stöðugur ökumaður og ég held að þessvegna sé hann á topp þrjú," sagði Fry og bætti við að sigurinn í Ungverjalandi hefði aukið sjálfstraust hans til muna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×