Formúla 1

Button: Ég er sami ökumaður og áður

Ökuþórinn Jenson Button hjá Honda í formúlu 1 segir að fyrsti sigur hans á ferlinum, sem hann náði í Ungverjalandi á síðasta tímabili, hafi ekki breytt stíl hans sem ökumanni. Á þeim sjö mótum sem eftir voru af tímabilinu hafnaði Button ávallt í efstu fimm sætunum.

"Faðir minn er ekki sammála mér en ég tel að ég sé alveg sami ökumaður og ég var fyrir sigurinn. Faðir minn segir að ég sé ákveðnari og taki meiri sénsa - sé almennt betri ökumaður. Ég er ósammála," sagði Button í vikunni.

"Ég held að um leið og maður hefur unnið eitt mót breytast markmiðin eitthvað og maður stefnir hærra. Ómeðvitað átti það líklega við um mig á seinni hluta tímabilsins."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×