Formúla 1

Alonso á sér nafna í Bretlandi

Breskur íþróttaáhugamaður borgaði í síðustu viku 200 dollara til að breyta nafni sínu í Fernando Alonso, samkvæmt enska dagblaðinu Mirror. Maðurinn, sem áður hét David Fuller, heitir nú Fernando Alonso Rodney Trotter Ronaldinho.

Maðurinn er 21 árs gamall og hefur, eins og fullt nafn hans gefur til kynna, verið tíður gestur á borðum nafnamannanefndar Bretlandseyja. Rodney Trotter er gömul sjónvarpspersóna frá Bretlandi en flestir ættu að þekkja nafn brasilíska knattspyrnusnillingsins Ronaldinho, sem Fuller breytti nafni sínu fyrst í.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×