Tónlist

Brekkusöngur í Smáralind

Á sýningunni Eyjan okkar, sem haldin verður í Smáralindinni 3. mars næstkomandi, verða Vestmannaeyjar og bestu afurðir þeirra kynntar fyrir gestum og gangandi. Á meðal þeirra er að sjálfsögðu brekkusöngurinn víðfrægi, sem verður haldinn með pompi og pragt í Vetrargarðinum að kvöldi dags.

Árni Johnsen mun að sjálfsögðu stýra söngnum styrkri hendi, en pólitískur andstæðingur hans, Róbert Marshall, er í hópi þeirra glæstu listamanna sem koma munu fram.

Árni var ekki á því að kosningabaráttan yrði samstarfi þeirra eða samsöng til trafala. „Nei, nei, það á enginn erfitt með að syngja saman. Söngur kemur pólitík heldur ekkert við, ekki frekar en landamærum eða tungumálum," sagði hann. Róbert hljóp eftirminnilega í skarðið fyrir Árna á Þjóðhátíð árið 2003, og sagðist hafa fengið fjölda boða um að koma fram og skemmta í kjölfar þess.

Hann var sammála Árna um að söngur næði út yfir alla pólitík. „Við Árni höfum meira að segja spilað saman áður, í skötuveislu á Umferðarmiðstöðinni," sagði Róbert. „Ég geri heldur ekki ráð fyrir því að margir myndu kjósa mig út af söngnum, og því síður Árna," bætti hann við.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×