Formúla 1

Raikkönen ætlar ekki að breyta um stíl

Raikkönen ætlar að standa fast á sínu hjá Ferrari
Raikkönen ætlar að standa fast á sínu hjá Ferrari NordicPhotos/GettyImages

Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen segist ekki ætla að breyta um stíl eftir að hann gekk í raðir Ferrari frá McLaren í Formúlu 1, hvorki utan vallar né innan. Raikkönen hefur verið gagnrýndur af Formúlusérfræðingum fyrir að taka ekki nógu vel leiðsögn og fyrir að taka íþróttina ekki nógu alvarlega.

"Ég ætla ekki að breyta nokkrum sköpuðum hlut, því stíllinn minn hefur virkað mjög vel hingað til. Það eina sem vantaði uppá hjá McLaren var að bíllinn var alltaf að bila og ef hann hékk saman, þá var hann ekki nógu hraðskreiður. Það hefði ekki breytt neinu að skipta um stíl hjá McLaren," sagði Raikkönen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×