Formúla 1

Alonso stefnir á sigur með McLaren

Fernando Alonso skartar nýrri klippingu fyrir komandi tímabil í formúlunni og er ekki laust við að kappinn sé eilítið snyrtilegri með snoðaðan kollinn. Hér sést hann ásamt Lewis Hamilton, einn af varaökumönnum McLaren, á blaðamannafundi í morgun.
Fernando Alonso skartar nýrri klippingu fyrir komandi tímabil í formúlunni og er ekki laust við að kappinn sé eilítið snyrtilegri með snoðaðan kollinn. Hér sést hann ásamt Lewis Hamilton, einn af varaökumönnum McLaren, á blaðamannafundi í morgun. MYND/Getty

Heimsmeistari síðustu tveggja ára í formúlu 1, Spánverjinn Fernando Alonso, er sigurviss fyrir komandi tímabil í kappakstrinum. Alonso skipti úr herbúðum Renault í McLaren eftir síðasta tímabil og telur hann að keppnisbíll McLaren eigi mikið inni þrátt fyrir að liðið hafi ekki unnið eina einustu keppni í fyrra.

"Ég veit ekki hvernig Ferrari er né hvernig Renault er en ég hef fulla trú á McLaren. Ég held að við verðum með mjög sterkt lið," sagði Alonso, sem skartar nýji hárgreiðslu sem hann segir endurspegla nýjan lífstíl.

"Ég er metnaðarfyllri núna heldur en áður - mér líður eins og nýjum manni eftir þessi skipti. Ég er búinn að vera í fríi í langan tíma og sný aftur á brautina með fullhlaðinn batterí. Mér líður vel og markmið mitt er skirt - ég vil verða heimsmeistari í þriðja sinn," sagði Alonso.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×