Formúla 1

BMW Sauber stefnir á verðlaunapall

Nick Heidfeld og Robert Kubica aka fyrir BMW Sauber á næsta tímabili
Nick Heidfeld og Robert Kubica aka fyrir BMW Sauber á næsta tímabili NordicPhotos/GettyImages

Forráðamenn BMW Sauber-liðsins í Formúlu 1 ætla liðinu að komast oftar á verðlaunapall á komandi keppnistímabili og setja stefnuna á að keppa um titilinn árið 2009. BMW tók við liði Sauber í lok árisins 2005 og komust ökumenn liðsins tvisvar á verðlaunapall á síðasta tímabili.

"Við stefnum á að komast á verðlaunapall á næsta tímabili en sigrar eru enn ekki raunhæf markmið, en við stefnum klárlega á að vera með í baráttunni um titilinn árið 2009. Við fórum fram úr væntingum árið 2006 og því verður erfitt að toppa þann árangur í ár, en við viljum vera bankandi á dyrnar ef stóru liðin gera mistök," sagði liðsstjórinn Mario Theissen.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×