Formúla 1

Barichello ánægður með nýja bílinn

Rubens Barichello og Jenson Buttonn svara hér spurningum fjölmiðla á blaðamannafundi í morgun.
Rubens Barichello og Jenson Buttonn svara hér spurningum fjölmiðla á blaðamannafundi í morgun.

Rubens Barichello kveðst mjög ánægður með nýja RA107-keppnisbíl Hondu liðsins í formúlu 1 en hann prufukeyrði hann í fyrsta sinn í vikunni. Barichello skipar lið Honda á komandi tímabili í formúlunni ásamt Jenson Button og segist sá brasilíski hlakka mikið til samstarfsins.

“Liðið hefur gert frábæra hluti með bílinn því þrátt fyrir að hann sé ekki ennþá orðinn 100% klár þá er hann þegar orðinn jafn hraður bílnum í fyrra. Ég naut þess virkilega að aka bílnum í vikunni og mér líður vel í honum,” segir Barichello.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×