Formúla 1

Alonso segir bílinn ekki tilbúinn

Fernando Alonso er ekki nógu ánægður með McLaren bílinn.
Fernando Alonso er ekki nógu ánægður með McLaren bílinn. MYND/Getty

Ökuþórinn Fernando Alonso, heimsmeistari síðustu tveggja ára í formúlu 1 kappakstrinum, reynir sitt besta til að draga úr væntingum til sín fyrir komandi tímabil í formúlunni með því að lýsa yfir áhyggjum sínum af keppnisbíl McLaren. Hinn 25 ára gamli Alonso yfirgaf herbúðir Renault í haust og gekk í raðir McLaren.

"Bíllinn er langt frá því að vera tilbúinn fyrir fyrsta mót ársins og tíminn flýgur. Það er ljóst að hann verður ekki tilbúinn þegar tímabilið hefst í Ástralíu," sagði Alonso, en þar fer fyrsta mót tímabilsins fram þann 18. mars nk.

"Bíllinn hefur verið mjög hraður á æfingum en ég tel að hann sé ekki orðinn nægilega góður til að skila liðinu efsta sæti í keppnum. Hann er einfaldlega ekki tilbúinn," segir Alonso.

Spurður um hvaða lið hann telur muni verða helstu keppinautar McLaren á þessu ári sagðist Alonso ekki geta gert upp á milli nokkurra liða. "Ferrari lítur vel út og ég býst við því að Renault byrji tímabilið vel eins og venjulega. BMW gæti orðið spútniklið ársins og jafnvel blandað sér í toppbaráttuna. Ég held að Honda muni ekki ganga eins vel og bjartsýnin þar á bæ gefur til kynna," sagði Alonso.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×