Formúla 1

Button er ekki bjartsýnn

Jenson Button tekur sig vel út í nýja Honda bílnum.
Jenson Button tekur sig vel út í nýja Honda bílnum. MYND/Getty

Ökuþórinn Jenson Button segir að Honda bíllinn í ár standi öðrum bílum töluvert langt að baki og hann sé því ekki bjartsýnn á góðan árangur á komandi leiktíð í formúlu 1 kappakstrinum. Forráðamenn Honda liðsins höfðu áður gert sér vonir um að berjast um sjálfan heimsmeistaratitilinn á þessu tímabili.

“Þetta eru mikil vonbrigði, en við erum einfaldlega ekki eins fljótir og hin liðin,” sagði Button hreinskilinn í samtali við breska fjölmiðla í morgun. Honda hefur ekki verið í hópi hröðustu bíla á æfingum liðanna í vetur og svo virðist sem að mikil vinna við bílinn sé enn fyrir höndum.

“Við reynum einmitt að horfa á jákvæðu hliðarnar í þessu og þær eru að það eru ennþá miklir möguleikar fyrir hendi. Bílinn getur orðið miklu betri og á næstu vikum þurfum við að þróa ýmsa þætti hans.”

Yfirverkfræðingur Honda, Jacky Eeckelaert, viðurkennir að Button hafi rétt fyrir sér. “Við erum ekki eins fljótir og McLaren, Ferrari eða BMW en ég held að við séum á undan Renault,” sagði hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×