Formúla 1

Hamilton í sögubækurnar?

Lewis Hamilton hefur komið skemmtilega á óvart það sem af er tímabili í Formúlu 1
Lewis Hamilton hefur komið skemmtilega á óvart það sem af er tímabili í Formúlu 1 NordicPhotos/GettyImages

Breski ökuþórinn Lewis Hamilton hjá McLaren á möguleika á að rita nafn sitt í sögubækur í Barein-kappakstrinum í Formúlu 1 á sunnudaginn. Þar getur hann orðið fyrsti nýliðinn til að komast á verðlaunapall í fyrstu þremur keppnum sínum á ferlinum.

Hamilton sjálfur er hógvær og reynir að stilla væntingum í hóf. "Ég hef náð á pall í fyrstu tveimur keppnunum, en ég er nú ennþá bara nýliði," sagði hinn ungi Hamilton. Hann er þó vongóður um að ná í sinn fyrsta sigur á jómfrúartímabili sínu. "Ég ætla að leggja eins hart að mér og ég get. Ég hef enn ekki gert dýr mistök, en það gera allir á einhverjum tímapunkti. Ég ætla þó að reyna að halda mínum í lágmarki."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×