Formúla 1

Lewis Hamilton getur orðið sá besti

Lewis Hamilton er nýjasta stjarnan í Formúlu 1
Lewis Hamilton er nýjasta stjarnan í Formúlu 1 AFP

Martin Whitmarsh, yfirmaður McLaren liðsins í Formúlu 1, segir að Bretinn ungi Lewis Hamilton geti vel orðið besti ökuþór í sögunni. Hamilton hefur vakið heimsathygli fyrir að komast á verðlaunapall í fyrstu þremur mótum sínum sem aðalökumaður.

"Það er auðvitað snemmt að segja til um þannig lagað, en ef Hamilton heldur áfram á þeirri braut sem hann hefur verið á það sem af er tímabilinu, sé ég ekkert því til fyrirstöðu að hann verði besti ökumaður allra tíma. Það er sannarlega ótrúlegt hvað hann hefur náð að gera í sínum allra fyrstu keppnum," sagði Whitmarsh.

Fyrrum þrefaldur meistari, Jackie Stewart, hefur þegar sagt að Hamilton gæti brotið blað í sögunni með því að verða heimsmeistari strax á fyrsta tímabili sínu og eigandinn Frank Williams hefur kallað hann "ofurmannlegan".

Whitmarsh hélt áfram; "Ég hef unnið með stórkostlegum ökumönnum í minni tíð eins og Alain Prost, Ayrton Senna, Mika Hakkinen og nú Fernando Alonso og Hamilton - og ég sé ekki betur en að Hamilton hafi það sem til þarf. Hann hefur tækni, hörku, hraða, einbeitingu og staðfestu."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×