Formúla 1

Massa á ráspól

Felipe Massa
Felipe Massa AFP

Brasilíumaðurinn Felipe Massa, sem keyrir fyrir Ferrari, tryggði sér í dag ráspólinn í tímatöku fyrir Barselónu-kappaksturinn í Formúlu eitt. Tímatakan var æsispennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en á lokamínútunum. Massa fékk harða keppni frá heimamanninum Fernando Alonso hjá McLaren, sem ræsir næstfremstur.

Tími Massa var 0,7 sekúndum skemmri en tími Alonso. Kimi Räikkönen hjá Ferrari og Lewis Hamilton hjá McLaren blönduðu sér einnig í baráttuna og áttu báðir á tímabili besta tímann.

Mér tókst að komast mistakalaust í gegnum lokahringinn, sagði Massa ánægður að tímatöku lokinni. Þetta er þriðji ráspóllinn sem Massa tryggir sér í röð.

Fyrir kappaksturinn, sem fer fram á morgun, eru þeir Alonso, Raikkonen and Hamilton jafnir á toppnum með 22 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×