Formúla 1

Upphitun: Formúlan snýr aftur eftir sumarfrí

Bragi Þórðarson skrifar
Búast má við fjölmörgum Varsteppan aðdáendum á Spa um helgina.
Búast má við fjölmörgum Varsteppan aðdáendum á Spa um helgina. Getty
Þrettánda umferðin í Formúlu 1 fer fram um helgina á einni mögnuðustu kappakstursbraut í heimi, Spa Francorchamps í Belgíu.

Mercedes er svo gott sem búið að tryggja sér titil bílasmiða eftir frábæra byrjun á tímabilinu. Ferrari er enn án sigurs og í stað þess að vera berjast um titilinn er nú hörkuslagur um annað sætið milli ítalska liðsins og Red Bull.

Uppfærða Honda vélin sem Red Bull fékk fyrir Mónakó kappaksturinn hefur reynst afar góð. Undanfarin ár hefur liðið aldrei getað keppt um sigur á Spa þar sem mikið afl er lykilatriði í Belgíu. Núna með Honda vélar má búast við Red Bull í toppslagnum um helgina.

Mercedes er með 150 stiga forskot í keppni bílasmiðaGetty
Getur Verstappen stöðvað Hamilton?

Lewis Hamilton er nánast öruggur með titil ökuþóra. Eini ökumaðurinn sem lýtur út fyrir að geta stöðvað Bretann er Max Verstappen. Hollendingurinn er eini ökuþórinn sem unnið hefur keppni í ár sem keyrir ekki fyrir Mercedes.

Verstappen er hálfur Belgi og getur hann því búist við gríðarlegum stuðningi um helgina frá hans fjölmörgu aðdáendum.

Eins og áður segir er Spa ein magnaðasta kappakstursbraut í heimi. Nánast hver einasta beygja er goðsagnarkennd en þar má helst nefna Eau Rouge. 

Nútíma Formúlu bíll getur tekið beygjuna á rúmlega 300 kílómetra hraða. Hallinn upp fjörtíu metra háu brekkuna í beygjunni nær mest 17 prósentum.

Að vanda verður hægt að fylgjast með kappakstrinum, tímatökum og æfingum í þráðbeinni á Stöð 2 Sport.

Dagskrá helgarinnar á Stöð 2 Sport:

Laugardagur 31. ágúst 09:55 Æfing

Laugardagur 31. ágúst 12:50 Tímataka

Sunnudagur 1. september 12:50 Kappakstur

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×