Tónlist

Föstudagsplaylisti Tuma Árnasonar

Hjalti Freyr Ragnarsson skrifar
Tumi lumar á ýmsu áheyrilegu hnossgæti í lagalista sínum.
Tumi lumar á ýmsu áheyrilegu hnossgæti í lagalista sínum. aðsend
Saxófónséníið Tumi Árnason hefur marga fjöruna sopið í blástursbransanum og væri nær ógerningur að telja upp öll tónlistarverkefnin sem hann hefur komið að með einum eða öðrum hætti. 

Fyrir tveimur vikum kom út þriðja og síðasta plata sveitar hans, Grísalappalísu, og ber hún titilinn Týnda rásin.

Fyrr á árinu kom út platan Allt er ómælið, en hún er afsprengi samstarfsverkefnis Tuma og Magnúsar Trygvasonar Eliassen.

Listinn er 5 klukkustundir að lengd og að sögn Tuma örlítil rokkslagsíða í honum. Hann telur ástæðuna fyrir því vera að hann hafi verið svo „maríneraður í ólátum í kringum Grísa útgáfuna.“ Lengdina segir hann svo stafa af því að það sé „svo erfitt að hætta þegar maður byrjar.“

„Ég held að það sé líka alveg mikill föstudagsærsladraugur í honum.“ Listinn sé blanda af efni sem hann hafi verið að hlusta á nýlega og eldri molum úr bunkanum. 

„Mér var bent á að hann endaði líka á því að vera í einhvers konar þematísku sónötuformi,“ segir Tumi að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×