Golf

Spennandi barátta á toppnum á langþráðu PGA-móti

Sindri Sverrisson skrifar
Justin Rose lék vel í dag.
Justin Rose lék vel í dag. vísir/getty

Englendingurinn Justin Rose og Bandaríkjamaðurinn Harold Varner III léku best þegar keppni á PGA-mótaröðinni hófst í dag að nýju eftir hlé vegna kórónuveirufaraldursins.

Rose og Varner léku á sjö höggum undir pari á fyrsta keppnisdegi Charles Schwab Challenge. Þeir fengu sjö fugla hvor um sig en sluppu alveg við að leika yfir pari.

Þéttur hópur fylgir á eftir þeim en þeir Jhonattan Vegas, Abraham Ancer, Collin Morikawa og Justin Thomas léku á -6 höggum hver, og þar á eftir koma níu kylfingar á -5 höggum. Keppni heldur áfram á morgun, í beinni útsendingu á Stöð 2 Golf, en mótinu lýkur á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×