Innlent

Óli Stef vildi stöðva bíl fatlaðrar konu sem þó komst hjá við illan leik

Jakob Bjarnar skrifar
Óli Stef ákvað að kjörið væri að stöðva bíl sem var að fara um Laugaveginn, enda smellpassaði það inn í viðburðinn Kakó og undrun, og konan varð undrandi, ekki vantaði það því hún taldi sig í fullum rétti að fara þar um.
Óli Stef ákvað að kjörið væri að stöðva bíl sem var að fara um Laugaveginn, enda smellpassaði það inn í viðburðinn Kakó og undrun, og konan varð undrandi, ekki vantaði það því hún taldi sig í fullum rétti að fara þar um. visir/vilhelm

Ólafur Stefánsson fyrrverandi handboltakappi og landsliðsmaður vildi stöðva bíl konu sem vildi fara um Laugaveg á bíl sínum. Bíllinn er með merki til marks um að þar færi fatlaður einstaklingur en það fór fram hjá hinum ákafa gjörningalistamanni. 

Óheppileg hetjudáð

Fyrir tæpri viku fjallaði Mbl.is um það sem ekki verður betur skilið en nokkur hetjudáð Ólafs Stefánssonar, handboltakappa, í það minnsta í hugum þeirra sem aðhyllast bíllausan lífsstíl og göngugötur. Óli „brá sér fyr­ir bif­reið sem ók ólög­lega niður Lauga­veg síðdeg­is í dag og vakti þannig undr­un og at­hygli veg­far­enda.“

Sagt er af því að mbl.is hafi átt leið hjá þegar Óli Stef hélt viðburðinn Kakó og undr­un, hluti af viðburðaupp­sprett­um (e. pop up) Borg­ar­inn­ar okk­ar, Vín­stúk­unn­ar Tíu sopa og Von­ar­stræt­is. 

Myndir sýna Ólaf­ með kakóbolla og ein­hverja furðuhluti; „ef­laust gerðum til að valda undr­un gesta, er hann stend­ur í vegi fyr­ir bíln­um sem virti að vett­ugi bann við akstri niður sum­ar­göt­una. Ólaf­ur hafði þó ekki er­indi sem erfiði og þurfti að sveigja frá er ökumaður bif­reiðar­inn­ar lét ekki segj­ast og hélt akstr­in­um áfram.“

Konan skelkuð og kvíðin

En hér er ekki öll sagan sögð.

„Þetta er sem sagt bíllinn hennar mömmu og þessu lendum við í þegar við keyrum heim,“ segir kona nokkur sem deilir téðri frétt mbl.is á Facebook og bendir á að kurteisi kosti ekki neitt.

Ólafur Stefánsson, eða Óli Stef eins og hann er jafnan kallaður, er einhver skærasta handboltastjarna sem Ísland hefur eignast. En hann hefur að undanförnu getið sér gott orð sem gjörningalistamaður og hefur meðal annars fengist við að skemmta öldruðum með heimspekilegu og frumlegu sprelli.visir/vilhelm

Konan segir svo frá: „Um daginn lamdi einhver maður í húddið og reif upp hurðina og bölvaði mömmu! Hún varð auðvitað mjög skelkuð.“

Þá segir að konan að kvíði hafi gripið um sig í brjósti móður hennar og að hún þori vart út úr húsi. „Svona uppákomur eru orðnar daglegt brauð. Tek fram að mamma er með hjólastólamerkið í bílnum sínum og leyfismiðann um að hún megi keyra heim til sín.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×