Erlent

Kínverjar hvattir til að klára af disknum sínum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Xi Jingping, forseti Kína, vill setja fæðuöryggi á oddinn.
Xi Jingping, forseti Kína, vill setja fæðuöryggi á oddinn. AP/Bikash Dware

Kínversk stjórnvöld hafa sagt matarsóun stríð á hendur, ekki síst vegna áhrifa kórónuveirufaraldursins og flóða á matvælaframleiðslu landsins. Xi Jinping forseti segir matarmagnið sem fer forgörðum „yfirgengi- og tilfinnanlegt.“ Þannig er talið að um 17 til 18 milljón tonn af mat hafi endað í ruslinu í Kína árið 2015.

Til að stemma stigu við matarsóun hefur „Hrein diska-herferðinni“ verið ýtt úr vör í Kína. Eins og nafnið gefur til kynna er herferðinni ætlað að fá Kínverja til að klára af diskunum sínum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem sambærileg herferð er kynnt til leiks. Það var jafnframt gert árið 2013 en þá var áherslan lögð á að fækka óhóflegum opinberum móttökum og öðrum viðburðum á vegum stjórnvalda. Nú eru það ekki síst almennir borgarar, allar 1400 milljónirnar, sem eru í forgrunni.

Xi segir kórónuveirufaraldurinn hafi vakið fólk til meðvitundar um mikilvægi fæðuöryggis, sem Kínverjar ættu að setja á oddinn. Ekki bætir úr skák að flóð síðustu vikna í suðurhluta landsins hafa komið illa við matvælaframleiðendur á svæðinu.

Hópur mínus einn

Eftir yfirlýsingar Xi forseta hvöttu Veitingaþjónustusamtök Wuhan matsölustaði til að takmarka fjölda rétta sem viðskiptavinir geta keypt. Að sögn breska ríkisútvarpsins gengur fyrirkomulagið undir heitinu „N-1“ - heildarfjöldi rétta þyrfti því að vera einum lægri en stærð hópsins. Sem dæmi má nefna að 10 manna hópur mætti því aðeins kaupa 9 rétti.

Fyrirkomulagið hefur mætt nokkur andspyrnu með íbúa borgarinnar sem segja það of strangt. „Hvað með einstakling sem fer út að borða? Hvað má hann panta marga rétti? Ekki neinn?“ er haft eftir einum notenda samfélagsmiðilsins Weibo. Mörgum þætti þannig eðlilegra að leggja áhersluna áfram á yfirgengilegar veislur hins opinbera, eins og gert var árið 2013.

Kínverska ríkissjónvarpið beindi spjótum sínum jafnframt að netverjum sem tekið hafa upp á því að borða óhóflegt magn í beinni útsendingu á netinu. Uppátækið er að jafnaði kallað Mubang og er vinsælt sjónvarpsefni víða í Asíu, ekki síst í Kína. Ríkissjónvarpið kínverska segir að margir matgráðugir netverjar eigi það jafnvel til að kasta upp eftir útsendinguna, þeir eigi í mestu erfiðleikum með að melta allt matarmagnið sem þeir innbyrða fyrir áhorfendur.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×