Körfubolti

Þvertók fyrir að vera grófur en var svo hent úr húsi fyrir ljótt brot á Luka Doncic

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Marcus Morris brýtur á Luka Doncic í leik Los Angeles Clippers og Dallas Mavericks í gær. Hann var rekinn af velli fyrir brotið.
Marcus Morris brýtur á Luka Doncic í leik Los Angeles Clippers og Dallas Mavericks í gær. Hann var rekinn af velli fyrir brotið. getty/Kevin C. Cox

Marcus Morris var sendur í sturtu þegar Los Angeles Clippers tryggði sér sæti í undanúrslitum Vesturdeildar NBA með sigri á Dallas Mavericks í nótt, 97-113. Clippers vann einvígið 4-2 og mætir annað hvort Denver Nuggets eða Utah Jazz í næstu umferð.

Morris var mikið milli tannanna á fólki eftir fimmta leik Clippers og Dallas. Hann steig þá á vinstri fót Luka Doncic, besta manns Dallas, en hann er einmitt meiddur á þeim fæti.

Eftir leikinn svór Morris af sér allar sakir og sagðist ekki hafa reynt að meiða Doncic. „Ég spila leikinn með virðingu fyrir sjálfum mér og öðrum leikmönnum. Það að halda því fram að ég sé að reyna að meiða einhvern viljandi er algjört rugl,“ skrifaði Morris á Twitter eftir fimmta leikinn sem Clippers vann, 

Morris sýndi það þó ekki beint í verki í leiknum í gær að hann væri ekki grófur leikmaður. Hann var nefnilega rekinn af velli undir lok 1. leikhluta fyrir ljótt brot á Doncic. Slóveninn snöggreiddist og ætlaði að hjóla í Morris en var stöðvaður af samherjum sínum.

„Þetta var hræðilegt brot,“ sagði Doncic eftir leikinn. „Hann gerði eitthvað svona í tveimur leikjum í röð. Ég vildi trúa því að brotið í síðasta leik hefði ekki verið viljaverk en þegar þú lítur á brotið í þessum leik er augljóst hvað mér finnst. Ég vil ekki eiga við svona leikmenn. Áfram veginn.“

Sem fyrr var Morris sakleysið uppmálað þótt hann viðurkenndi að hann hefði átt skilið að fá brottvísun.

„Þeir urðu að gera þetta. Þetta var hörkueinvígi og hart barist. Ég vil bara ekki að fólk rugli því að spila fast saman við það að reyna að meiða einhvern. Ég held að Tim Hardaway hafi brotið mjög harkalega á Paul George í síðasta leik en það var ekki litið sömu augum,“ sagði Morris sem skoraði níu stig áður en hann var rekinn af velli.

Óhætt er að segja að Morris hafi komið mikið við sögu í einvíginu gegn Dallas. Í fyrsta leik liðanna var Kristpas Porzingis sendur í sturtu eftir að hafa brugðist illa við eftir að Morris greip í hálsinn á Doncic.

Í sínu fyrsta einvígi í úrslitakeppninni var Doncic með 31 stig, 9,8 fráköst og 8,7 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann skoraði m.a. eftirminnilega sigurkörfu í fjórða leik Dallas og Clippers.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×