Sport

Ís­lands­meistarinn segir hvíldina hafa verið sinn akkilesar­hæl í gegnum tíðina

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Hilmar Örn setti Íslandsmet í sleggjukasti nýverið og er meðal tíu bestu í heiminum að svo stöddu.
Hilmar Örn setti Íslandsmet í sleggjukasti nýverið og er meðal tíu bestu í heiminum að svo stöddu. Mynd/Stöð 2

Hilmar Örn Jónsson hefur farið á kostum undanfarnar vikur og mánuði. Hann setti nýverið Íslandsmet í sleggjukasti í Kaplakrika þegar hann kastaði sleggjunni 77.10 metra. Það setur hann í hóp tíu bestu sleggjukastara heims á þessu ári.

Guðjón Guðmundsson – Gaupi – ræddi við Hilmar Örn í Sportpakka Stöðvar 2 í kvöld. Innslagið má sjá í spilaranum hér að neðan.

„Það er örugglega búið að taka tíu ár, í heildina allavega. Svo núna í vor hefur verið góður undirbúningur og það hefur gengið vel,“ sagði Hilmar Örn um þann tíma sem það hefur tekið að komast á topp tíu.

„Ég bý að því að hafa verið í öllum greinum í frjálsum þegar ég var yngri svo að ég er þokkalega samhæfður og gat gert ýmislegt þegar ég var yngri. Nú er ég aðeins þyngri og einbeiti mér bara að sleggjunni,“ sagði Hilmar og glotti við tönn.

„Fyrir mér er þetta bara ágætt. Finnst fínt að vera einn að kasta en stundum saknar maður félagsskapsins. Það var fínt að fara til Slóveníu, þá var ég að æfa með strákum á sama getustigi og ég sem var mjög skemmtilegt,“ sagði Hilmar aðspurður hvort það væri ekki leiðinlegt að æfa alltaf einn.

„Kannski mikilvægast að hvíla vel líka. Það hefur verið minn akkílesarhæll – hvíldin – ég hef ekki nennt því og verið á fullu í of marga daga og næstum keyrt mig í kaf. Nú er ég að læra inn á það að ég þarf að vera duglegri að taka því rólega.“

„Þarf að kasta 77.50 metra eða vera topp 32 í heiminum samkvæmt þessum nýja stigalista,“ sagði Hilmar að lokum um hvað þarf að gerast til að hann komist á Ólympíuleikana í Tókýó næsta sumar.

Klippa: Segir hvíldina hafa verið sinn akkilesarhæl



Fleiri fréttir

Sjá meira


×