Lífið samstarf

Frídeildin komin í loftið

Frídeildin.is
Sigurliðið í einu af Hraðmótum Frídeildarinnar átti glæsilega umferð í 2. leikviku
Sigurliðið í einu af Hraðmótum Frídeildarinnar átti glæsilega umferð í 2. leikviku

Frídeildin.is hefur nýlega hafið göngu sína. Um er að ræða nýjung á Íslandi en vefsíðan þjónustar Fantasy Premier League með því að halda úti og þjónusta fyrirtækjadeildir sem spilarar þekkja á Frídeildin.is. Engin þörf er að halda úti liði á tveimur stöðum þar sem Frídeildin.is sér um að lesa stigin þín frá Fantasy Premier League.

Það kostar ekkert að skrá sig og verða veglegir vinningar greiddir út vikulega, mánaðarlega og fyrir keppnistímabilið í heild sinni. Nú þegar hafa verið greiddir út vinningar að andvirði á annað hundruð þúsund króna.

Styttri mótin verða haldin í formi hraðmóta en þar verður spilað til styttri tíma, gjarnan 1-4 leikvikur og hentar vel þeim notendum leiksins sem hafa ekki endilega einbeitingu í að spila allt keppnistímabilið.

Frídeildin.is er í samstarfi við öflug fyrirtæki sem hafa skuldbundið sig til útgreiðslu vinninga og fá deildir nefndar í höfuðið á sér eða vörumerki á sínum vegum sem þau vilja koma á framfæri.

Ef þú hefur ekki stofnað Fantasy lið er um að gera að hafa snör handtök og skrá sig til leiks enda til mikils vinna í þeim hraðmótum sem fara af stað um helgina. Þá er opið fyrir nýskráða notendur að skrá sig í deildir sem vara allt keppnistímabilið með stigin sín allt til 1. desember.

SKRÁÐU ÞIG TIL LEIKS HÉR






Fleiri fréttir

Sjá meira


×