Fótbolti

KV og Reynir Sandgerði upp í 2. deild

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Leikmenn KV stilltu sér upp fyrir mynd eftir að sætið í 2. deild var tryggt. 
Leikmenn KV stilltu sér upp fyrir mynd eftir að sætið í 2. deild var tryggt.  Vísir/KV

Knattspyrnufélag Vesturbæjar og Reynir Sandgerði eru komin upp úr 2. deild karla í knattspyrnu þó enn séu þrjár umferðir eftir af mótinu. Bæði lið unnu leiki sína í kvöld.

Tap KFG gegn Hetti/Huginn á Egilsstöðum þýddi að ef KV og Reynir myndu vinna sína leiki væri sæti þeirra í 2. deild að ári tryggt þó bæði lið ættu eftir að leika þrjá leiki.

Reynslumiklir leikmenn eru í báðum þessum liðum en í liði KV er til að mynda Grétar Sigfinnur Sigurðarson, margfaldur Íslands- og bikarmeistari með KR á sínum tíma. Kristján Páll Jónsson hefur lengi leikið með Leikni Reykjavík en spilar nú í Vesturbænum. Ingólfur Sigurðsson – fyrrum leikmaður KR, Vals, Þróttar R. og fleiri liða – einnig kominn aftur í Vesturbæinn.

Hjá Sandgerði er töluvert af mönnum sem gerðu garðinn frægan með Keflavík á árum áður. Þar má nefna Hörð Sveinsson og Magnús Sverri Þorsteinsson. Halldór Kristinn Halldórsson lék svo með Leikni R. sem og Keflavík fyrir nokkrum árum.

Álftanes heimsótti Sandgerði og ætlaði sér að skemma veisluna. Það gekk ekki upp en heimamenn skoruðu þrjú mörk á sex mínútna kafla í upphafi síðari hálfleiks og svo gott sem tryggðu sæti sitt í 2. deild að ári.

Benedikt Jónsson, Guðmundur Gísli Gunnarsson og Elton Renato Livramento Barros skoruðu mörk heimamanna en Árni Eyþór Hreiðarsson minnkaði muninn fyrir gestina undir lok leiks.

Í Vesturbænum var Tindastóll í heimsókn og sáu gestirnir aldrei til sólar. Lokatölur 5-1 KV í vil sem tók þar með toppsætið af Reyni og tryggði sér einnig þátttökurétt í 2. deild. Er þetta í þriðja sinn sem KV kemst upp í 2. deild en liðið fór alla leið upp í næst efstu deild sumarið 2014.

Þá er vert að nefna að Sigurvin Ólafsson, sérfræðingur Pepsi Max Stúkunnar og fimmfaldur Íslandsmeistari með ÍBV, KR og FH, er þjálfari KV á meðan Haraldur Freyr Guðmundsson, fyrrum atvinnumaður í Noregi og á Kýpur, er þjálfari Reynis.

KV er á toppi deildarinnar með 43 stig en Reynir er með stigi minna. Álftanes og Vængir Júpíters eru í fallsæti sem stendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×