Körfubolti

Jón Arnór um ákvörðun KKÍ: Hefði mátt blása þetta af fyrr

Anton Ingi Leifsson skrifar
Jón Arnór Stefánsson í leik fyrr í vetur.
Jón Arnór Stefánsson í leik fyrr í vetur. Vísir/Bára

Jón Arnór Stefánsson, leikmaður KR og einn besti körfuboltamaður sem Ísland hefur átt, segist ekki ósammála ákvörðun KKÍ um að flauta tímabilið af í körfuboltanum hér heima. Sú ákvörðun hefði mögulega mátt koma fyrr.

Jón Arnór var gestur í Sportinu í kvöld í gær þar sem hann og Ríkharð Óskar Guðnason fóru yfir sviðið en það gæti farið sem svo að Jón Arnór hafi spilað sinn síðasta körfuboltaleik.

Jón Arnór var spurður út í ákvörðun KKÍ um að blása tímabilið af og hvernig sú ákvörðun hefði litið út fyrir honum.

„Alls ekki. Það má segja að nostradamusinn í þessu hafi verið Brynjar Þór Björnsson. Þeir hefðu mátt blása mótið af fyrr en ég er enginn sérfræðingur um þetta. Þessi veira var ekki svo langt á veg komin þegar við spiluðum þessa tvo leiki gegn Stjörnunni og Val. Svona eftir á að hyggja hefði mátt blása þetta af fyrr,“ sagði Jón Arnór.

Hamarsmenn sátu eftir með sárt ennið og án þess að hafa velt sér mikið upp úr þessu sagði Jón Arnór að hann hefði núllað tímabilið bara út.

„Það er mjög erfitt að skilja einhver lið eftir og mjög ósanngjarnt ef maður horfir á það þannig en ég hefði viljað þá strika þetta tímabil út og hefja nýtt á næsta ári með sömu deild. Jafnvel fjölga liðum, ég veit það ekki.“

„Ég hef ekki mikið verið að spá í þessu persónulega og hef ekki miklar skoðanir á þessu en mér hefði fundist það vera sanngjarnast að strika þetta bara út og byrja nýtt á næsta tímabili. En það er erfitt að vera hér og stúdera þetta og þetta er erfið ákvörðun. Ég skil Hannes og co. að þeir hafi þurft að draga línurnar einhversstaðar og maður ber virðingu fyrir því.“

Klippa: Sportið í kvöld - Jón Arnór um ákvörðun KKÍ

Sportið í kvöld er á dagskrá Stöðvar 2 Sports á þriðjudags-, miðvikudags- og fimmtudagskvöldum klukkan 20.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×