Handbolti

Bjuggust ekki við að sjá þetta hjá Valsmönnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þorgils Jón Svölu Baldursson skorar kannski ekki mikið en skiptir engu að síður gríðarlega miklu máli fyrir Valsliðið.
Þorgils Jón Svölu Baldursson skorar kannski ekki mikið en skiptir engu að síður gríðarlega miklu máli fyrir Valsliðið. Vísir/Bára

Sportið í dag fór yfir það hvernig Valsmenn komu til baka eftir klúðrið fyrir norðan og unnu einn flottasta sigur tímabilsins í Olís deild karla í handbolta.

Valsmenn hafa verið í miklum vandræðum eftir að Olís deildin fór aftur af stað eftir kórónuveiruhlé en það var allt annað að sjá liðið í stórsigri á Aftureldingu í síðustu umferð.

Kjartan Atli Kjartansson, Ríkharð Óskar Guðnason og Henry Birgir Gunnarsson ræddu Valsliðið í nýjast hlaðvarpsþætti Sportsins í dag á Vísi.

„Það kviknaði heldur betur á þeim í gær,“ sagði Henry Birgir Gunnarsson í upphafi umræðunnar um Valsliðið.

„Ég verð að viðurkenna það að ég bjóst ekki við þessu,“ sagði Ríkharð Óskar Guðnason og Henry Birgir var algjörlega sammála honum í því.

„Ég sá þetta engan veginn fyrir. Þessi rosalegi kraftur og fyrir mér er stóri munurinn er að við erum að sjá að stóru leyti að sjá hversu rosalegt mikilvægi Þorgils Jóns Svölu Baldurssonar fyrir þetta Valslið. Vinnslan, tempóið og öll áræðni í liðinu sérstaklega varnarlega,“ sagði Henry Birgir.

„Við sáum þá fá á baukinn um daginn þegar þeir fengu á sig 35 mörk. Þeir jarða Aftureldingu og fá á sig tíu mörk í fyrri hálfleiknum. Þorgils færir liðinu svo mikið þó svo að hann sé bara orðinn einhver sjötíu prósent maður,“ sagði Henry Birgir.

„Hann er ekki einu sinni alveg heill,“ sagði Ríkharð.

Henry sagði að Þorgils hefði spilað tíu mínútur í hvorum hálfleik á móti KA fyrir norðan en spilaði fimmtán til tuttugu mínútur í hálfleik á móti Aftureldingu.

Róbert Aron Hostert er síðan að koma inn í næsta leik en hann er líka mjög góður varnarmaður auk þess að vera afburðarsóknarmaður líka.

„Ég held að Valsmenn séu að fara að ná vopnum sínum en þetta var rosalega mikilvægt hvernig þeir settu tóninn í þessum leik upp á framhaldið að gera. Þeir létu önnur lið vita að þeir væru ekki að fara neitt,“ sagði Ríkharð.

Það má heyra þetta og það sem þeir sögðu um markmenn Valsliðsins og Hreiðar Levý Guðmundsson í nýjasta þættinum af Sportinu í dag. Þátturinn er aðgengilegur hér fyrir ofan.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×