Formúla 1

Varar við mót­mælum sem gætu valdið al­var­legum meiðslum eða dauða

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Framkvæmdarstjóri breska Silverstone-kappakstursins í Formúlu 1 hefur engan áhuga á því að sjá mótmælendur hlaupa út á brautina. Eðlilega svo sem.
Framkvæmdarstjóri breska Silverstone-kappakstursins í Formúlu 1 hefur engan áhuga á því að sjá mótmælendur hlaupa út á brautina. Eðlilega svo sem. Vísir/Getty

Stuart Pringle, framkvæmdarstjóri breska Silverstone-kappakstursins í Formúlu 1, varar þá sem gætu ætlað sér að nýta kappaksturinn til mótmæla við því að hlaupa inn á brautina þar sem það gæti valdið alvarlegum slysum eða dauða.

Nokkrir íþróttaviðburðir hafa verið truflaðir undanfarnar vikur og mánuði af umhverfis- og dýraverndunarsamtökum sem hafa nýtt vel sótta viðburði til að vekja athygli á malstað sínum. Nýlegasta dæmið er frá Wimbledon-mótinu í tennis þar sem einstaklingar á vegum samtakanna Just Stop Oil sá til þess að gera þurfti hlé á viðureignum.

Pringle segir hins vegar að munurinn á því að stöðva tennisleik og kappakstur í Formúlu 1 sé sá að það síðarnefnda geti haft mun alvarlegri afleiðingar í för með sér.

„Það er fáránlegt kæruleysi að leggja eigið líf að veði fyrir málstaðinn,“ sagði Pringle. „Þetta gæti líka sett líf ökumanna, áhorfenda og starfsmanna í hættu.“

Hann segir að um 480 þúsund manns verði á svæðinu þegar Silverstone-kappaksturinn fer fram um helgina og að þrátt fyrir að brautin sé girt af sé girðingin ekki hönnuð til að halda fólki af brautinni.

„Þetta er öðruvísi en í krikket eða tennis. Við erum með girðingu sem er hönnuð til að koma í veg fyrir að fljúgandi partar úr kappakstursbíl fari upp í stúku ef slys verður,“ bætti hann við.

„Það hjálpar klárlega, en girðingin er hönnuð til þess en ekki til að stöðva einhverja manneskju sem er ákveðin í því að komast inn á brautina og leggja líf sitt í hættu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×