Formúla 1

Heimsmeistarinn hótar að hætta í F1

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Max Verstappen hefur verið yfirburðarmaður síðustu tvö tímabil eftir að hann landaði fyrsta heimsmeistaratitli sínum árið 2021.
Max Verstappen hefur verið yfirburðarmaður síðustu tvö tímabil eftir að hann landaði fyrsta heimsmeistaratitli sínum árið 2021. AP/Darko Vojinovic

Max Verstappen, ríkjandi heimsmeistari í formúlu eitt, er allt annað en ánægður með nýja uppröðun á keppnisdagatalinu á næsta ári.

Hollendingurinn hefur unnið tvo síðustu heimsmeistaratitla og er með yfirburðarforystu í keppninni í ár. Hann hótar hins vegar að hætta vegna óánægju sinnar.

Formúlan tilkynnti fyrr í þessari vikur að það verða 24 keppnir á 2024 tímabilinu og tímabilið verður lengra en nokkurn tímann fyrr. Þetta fór ekki vel í hinn 25 ára gamla ökumann Red Bull.

„Þetta eru allt of margar keppnir að mínu mati en við verðum víst bara að reyna að vinna okkur í gegnum þetta,“ sagði Max Verstappen.

„Það þarf að endurhugsa marga hluti áður en ég ákveði það hvort ég muni halda áfram eða ekki. Allar þessar nýjungar eru ekki að hjálpa til,“ sagði Max Verstappen.

Verstappen er með samning við Red Bull til ársins 2028. George Russell, keppinautur hans hjá Mercedes, tekur ekki mikið mark á þessum hótunum og telur að hann sé bara að reyna að redda sér enn stærri samning.

„Það frábær taktík hjá honum að hóta því að hætta en ég vona að hann láti ekki verða að því. Ég vona að hann haldi áfram sem lengst af því að ég vil keppa við bestu ökumennina í heimi,“ sagði George Russell.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×