Golf

Eldri kylfingar sem hunsuðu dómara lausir úr banni

Kjartan Kjartansson skrifar
Margeir Vilhjálmsson (t.h.) að leik. Hann hvatti tvo meðspilara sína sem fengu vítahögg til þess að hunsa úrskurð dómara á Íslandsmóti á Akureyri í fyrra. Þeir voru allir þrír dæmdir í ársbann frá keppni en það hefur nú verið stytt verulega.
Margeir Vilhjálmsson (t.h.) að leik. Hann hvatti tvo meðspilara sína sem fengu vítahögg til þess að hunsa úrskurð dómara á Íslandsmóti á Akureyri í fyrra. Þeir voru allir þrír dæmdir í ársbann frá keppni en það hefur nú verið stytt verulega. GSÍ

Tveir eldri kylfingar sem hunsuðu úrskurð dómara á Íslandsmóti á Akureyri fengu keppnisbann sem þeir voru dæmdir í stytt fyrir áfrýjunardómstóli. Þeim er því frjálst að skrá sig í Íslandsmótið í ár sem fer fram um næstu helgi.

Aganefnd Golfsambands Íslands dæmdi þá Margeir Vilhjálmsson, Kristján Ólaf Jóhannesson og Helga Svenberg Ingason í tólf mánaða keppnisbann fyrir óprúðmannlega og ámælisverða hegðun og alvarleg agabrot frá 30. september í fyrra. Þeir tóku höndum saman um að hunsa dómara sem dæmdi þá Kristján og Helga í tveggja högga víti og skrá rangt skor að loknum hringnum á Jaðarsvelli á Akureyri í júlí í fyrra.

Dómstóll GSÍ staðfesti niðurstöðu aganefndarinnar þegar þeir Margeir og Kristján áfrýjuðu þangað í mars. Helgi kaus að una banni sínu.

Margeir og Kristján fóru enn lengra með málið og skutu því til áfrýjunardómstóls GSÍ. Hann taldi tímalengd refsingarinnar ekki í samræmi við brot tvímenninganna. Mildaði dómstóllinn því refsingu þeirra úr tólf mánuðum í fjóra. 

Refsing þeirra var talin hæfilega sex mánuðir en var stytt niður í fjóra vegna dráttar á málarekstrinum. Þeir voru því tæknilega í keppnisbanni frá október út janúar, á tímabili þar sem fátt er um golfmót á Íslandi. Áfrýjunardómstóllinn taldi að þeir ættu ekki að líða fyrir að lög og reglur golfhreyfingarinnar um refsinákvarðanir tækju ekki nægilega mið af því að golftímabilið á Íslandi sé að mestu að sumri til.

Úrskurðurinn var kveðinn upp þriðjudaginn 4. júlí. Frestur keppenda til þess að skrá sig til leiks á Íslandsmót eldri kylfinga rann út í hádeginu í dag. Niðurstaðan þýddi því að Margeiri og Kristjáni var frjálst að skrá sig til keppni í því.

Svo reyndir kylfingar hefðu átt að þekkja reglurnar

Áfrýjunardómstóllinn hafnaði rökum tvímenninganna um að staðarregla sem bannaði æfingapútt sem Kristján braut hafi ekki verið nægilega kynnt. Þá væri sannað að dómari hafi upplýst þá um að þeir Kristján og Helgi þyrftu að sæta tveggja högga víti fyrir að brjóta staðarregluna. Einnig taldist sannað að Margeir, sem var ritari, hafi vitað af vítinu.

Fram kom við málareksturinn að þremennigarnir hafi brugðist illa við úrskurði dómarans úti á velli. Margeir hafi sagt meðspilurunum sínum að hunsa úrskurðinn og skrá skor sitt án vítahögganna. Margeir úthúðaði síðar dómurum og starfsmönnum mótsins í Facebook-færslu.

Kylfingarnir þrír eru ávítaðir í dómi áfrýjunardómstólsins fyrir að hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að skila skortkortunum með þessum hætti í ljósi þess að þeir væru reyndir golfspilarar. Gera yrði þá kröfu til þess að þekkja golfreglurnar, sérstaklega þá að hlýta verði úrskurði dómara.

Bent var á að eftir að þremenningunum var vísað af mótinu hafi ritari annars kylfings sem braut sömu staðarreglu gefið sig fram og látið vita af brotinu. Ritarinn, sem sagðist hafa vitað af regluna, fékk brottvísun úr mótinu en kylfingurinn sem braut regluna fékk tveggja högga víti.

Þrír dómarar við áfrýjunardómstólinn tóku einnig undir gagnrýni dómara við dómstól GSÍ um að ekki hafi verið nægjanleg formfesta í störfum mótstjórnar þegar ákvarðanir voru teknar um mikilvæga hagsmuni einstaklinga á Íslandsmótinu í fyrra. Þá fundu þeir að því að svo virtist sem að aðeins einn dómari hafi verið að störfum á mótinu.


Tengdar fréttir

Dramatík, kærur og klögumál hjá heldri kylfingum

Margeir Vilhjálmsson kylfingur hefur við þriðja mann verið kærður til aganefndar Golfsambands Íslands en kæran er frá mótstjórn Íslandsmóts eldri kylfinga, sem haldið var dagana 14. – 16. júlí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×