Tónlist

Aðdáendur misstu sig yfir leynigestinum

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Eminem var leynigestur á tónleikum Ed Sheeran í Detroit um helgina.
Eminem var leynigestur á tónleikum Ed Sheeran í Detroit um helgina. Jeff Kravitz/FilmMagic

Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran kom tónleikagestum sínum í Detroit heldur betur á óvart um helgina með óvæntum gesti. Sheeran tilkynnti áhorfendum að hann ætlaði að taka gítarútgáfu af sögulega smellinum Lose Yourself eftir Eminem en rapparinn gekk stuttu síðar inn á svið og tók við.

Sheeran sagði í upphafi að hann ætlaði að gera heiðarlega tilraun til að taka þennan smell sem Eminem hlaut meðal annars Óskarsverðlaun fyrir árið 2003. Lagið var titillag kvikmyndarinnar 8 Mile sem Eminem fór með aðalhlutverk í ásamt Brittany Murphy. 

Detroit er heimabær Eminem og misstu aðdáendur sig þegar kappinn byrjaði að rappa og var ekki verra að vera með Ed Sheeran til að taka undir í viðlaginu.

Eminem lét eitt lag ekki nægja en Ed Sheeran spurði áhorfendur hvort þeir væru ekki til í annað lag frá rapparanum.

„Hann ætlaði bara að koma og taka eitt lag en ég sagði að hann gæti ekki stigið á svið í Detroit og tekið bara eitt lag,“ sagði Sheeran á sviðinu.

Eminem tók þá lagið Stan sem hann gaf út árið 2000 ásamt söngkonunni Dido. Sheeran söng hluta Didoar í laginu og eftir flutninginn kallaði Eminem út í salinn að hann hefði saknað Detroit.

​​Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Sheeran og Eminem sameina krafta sína en þeir komu meðal annars fram í fyrra þegar Eminem hlotnaðist sá heiður að vera tekinn inn hinn virta Rock and Roll Hall of Fame. Þetta óvanalega en skemmtilega tvíeyki vann fyrst saman árið 2017 á laginu River en lagið má heyra í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir

Ed Sheeran fagnar sigri í deilunni um Thinking Out Loud

Kviðdómendur í Bandaríkjunum hafa komist að þeirri niðurstöðu að breski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran byggði lag sitt Thinking Out Loud ekki á laginu Let‘s Get It On með Marvin Gaye. Afkomendur Ed Townsend, annars mannsins sem skrifað lagið síðarnefnda, höfðuðu mál gegn Sheeran.

Eminem gefur óvænt út plötu

Rapparinn Eminem gaf óvænt út plötuna Music to be Murdered by í gærkvöldi og hafði í raun enginn hugmynd um það að hann væri að vinna að nýrri plötu.

Stjörnum prýdd plata Ed Sheeran komin út

Enski tónlistarmaðurinn Ed Sheeran, sem væntanlegur er til Íslands í ágúst þar sem hann mun spila á tvennum tónleikum á Laugardalsvelli, gaf í dag út sína fjórðu plötu, No. 6. Collaborations Project.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×