Golf

Áhugamaðurinn og Fleetwood efstir á Opna breska

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Christo Lamprecht hefur slegið í gegn á Opna breska.
Christo Lamprecht hefur slegið í gegn á Opna breska. getty/Keyur Khamar

Áhugamaðurinn Christo Lamprecht og Tommy Fleetwood eru efstir og jafnir á Opna breska meistaramótinu í golfi sem hófst í dag.

Hinn suður-afríski Lamprecht hefur stolið senunni á Opna breska og lék fyrsta hringinn á fimm höggum undir pari.

Fleetwood lék fyrsta hringinn sömuleiðis á fimm höggum undir pari en þeir Lamprecht deila forystunni. Bandaríkamaðurinn þrautreyndi, Stewart Cink, er í 3. sæti á þremur höggum undir pari.

Jordan Spieth er fjórði á tveimur höggum undir pari en efsti maður heimslistans, Scottie Scheffler, er á einu höggi undir pari.

Cameron Smith, sigurvegarinn á Opna breska í fyrra, er á einu höggi yfir pari. Fjölmargir þekktir kylfingar eiga enn eftir að hefja leik, þar á meðal Rory McIlroy sem þykir mjög líklegur til afreka á Opna breska.

Fylgjast má með beinni útsendingu frá Opna breska á Stöð 2 Sport 4.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×