Fótbolti

39 ára Iniesta fær nýjan samning með mögu­leika á fram­lengingu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Andres Iniesta í leik með japanska félaginu Vissel Kobe.
Andres Iniesta í leik með japanska félaginu Vissel Kobe. Getty/Hiroki Watanabe

Andrés Iniesta spilaði ekki síðasta fótboltaleikinn sinn í Japan því Spánverjinn hefur skrifað undir nýjan samning hjá Emirates Club.

Hinn 39 ára gamli Inesta samþykkti tilboð frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Félagið býður hann velkominn á samfélagsmiðlum sínum.

Fabrizio Romano segir að þetta sé eins árs samningur með möguleika á framlengingu um eitt ár í viðbót.

Emirates Club er nýkomið upp í efstu deild í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Iniesta lék 674 fyrstu meistaraflokksleiki sína með Barcelona á Spáni og átti þar frábæran tíma. Hann yfirgaf félagið 2018 og hefur undanfarin ár spilað með Vissel Kobe í Japan.

Iniesta varð bæði heims- og Evrópumeistari með spænska landsliðinu en hann skoraði sigurmarkið í úrslitaleiknum á HM í Suður Afriku 2010.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×