Formúla 1

Max Verstappen með níunda sigurinn í röð og jafnaði met Sebastian Vettel

Siggeir Ævarsson skrifar
Max Verstappen fagnar sínum 9. sigri í röð
Max Verstappen fagnar sínum 9. sigri í röð Vísir/Getty

Ekkert lát er á yfirburðum Max Verstappen í Formúlu 1 þetta árið en hann vann sinn 9. sigur í röð þegar hann kom fyrstur í mark á Zandvoort brautinni í Hollandi.  Með sigrinum jafnaði hann met Þjóðverjans Sebastian Vettel yfir flesta sigra í röð.

Líkt og í tímatökunni setti rigningin svip sinn á keppnina í dag þar sem bílar flugu út og suður og rauða flaggið fór á loft oftar en einu sinni. Öryggisbíllinn kom út þegar aðeins sjö hringir voru eftir af 72.

Verstappen kom að lokum fyrstur í mark við erfiðar aðstæður, tæpur þremur sekúndum á undan Fernando Alonso og sjö sekúndum á undan Pierre Gasly sem komst á verðlaunapall í fjórða sinn á ferlinum en þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem Alpine áttu ökumann á palli.

Verstappen er eftir keppni dagsins með 339 stig í keppni ökumanna og samherji hans hjá Red Bull, Sergio Perez, kemur næstur með 201. Í þriðja sæti er svo Fernando Alonso með 168 stig og Lewis Hamilton er með 156 í fjórða sæti.

Í keppni bílasmiða er Red Bull með afgerandi forskot og hafa rakað saman 540 stigum alls en Mercedes koma næstir með 255 stig.

Fræga fólkið lætur sig ekki vanta á Formúlu 1 keppnirnar. Steve Carell var meðal gesta í dag.Vísir/Getty



Fleiri fréttir

Sjá meira


×