Formúla 1

Saman­tekt frá For­múlu 1 keppninni í Hollandi

Smári Jökull Jónsson skrifar
Keppnin um helgina fór fram á Zandvoort brautinni í Hollandi.
Keppnin um helgina fór fram á Zandvoort brautinni í Hollandi. Vísir/Getty

Max Verstappen fór með sigur af hólmi í Formúlu 1 keppni helgarinnar sem fram fór í Hollandi. Með sigrinum sló hann met Sebastian Vettel yfir flesta sigra í röð.

Líkt og í tímatökunni setti rigningin svip sinn á keppnina í dag þar sem bílar flugu út og suður og rauða flaggið fór á loft oftar en einu sinni. Öryggisbíllinn kom út þegar aðeins sjö hringir voru eftir af 72.

Verstappen er eftir keppni dagsins með 339 stig í keppni ökumanna og samherji hans hjá Red Bull, Sergio Perez, kemur næstur með 201. Í þriðja sæti er svo Fernando Alonso með 168 stig og Lewis Hamilton er með 156 í fjórða sæti.

Í keppni bílasmiða er Red Bull með afgerandi forskot og hafa rakað saman 540 stigum alls en Mercedes koma næstir með 255 stig.

Í spilaranum hér fyrir neðan er hægt að horfa á samantekt frá keppninni í Hollandi.

Klippa: Samantekt frá Formúlu 1 í Hollandi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×