Formúla 1

Hamilton hjá Mercedes út árið 2025

Aron Guðmundsson skrifar
Lewis Hamilton, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 er ekki á förum frá Mercedes né Formúlu 1
Lewis Hamilton, sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1 er ekki á förum frá Mercedes né Formúlu 1 Vísir/Getty

Sjöfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Lewis Hamilton hefur skrifað undir nýjan samning við Mercedes út tímabilið 2025. 

Hamilton er einn sigursælasti ökumaðurinn í sögu Formúlu 1 og eftir margra mánaða vangaveltur um það hvort hann myndi framlengja dvöl sína hjá Mercedes hefur það nú loks verið staðfest að svo sé raunin. 

Þessi 38 ára gamli Breti hefur að undanförnu verið orðaður við skipti yfir til Ferrari en hann og George Russell munu skipa ökumannsteymi Mercedes út tímabilið 2025.

Hamilton hóf Formúlu 1 feril sinn árið 2007 með McLaren en fyrir tímabilið 2013 skipti hann yfir til Mercedes þar sem að sex af hans sjö heimsmeistaratitlum hafa komið. 

Þá á hann stóran þátt í glæstri velgengni Mercedes árin 2014-2021 þar sem að liðið varð heimsmeistari bílasmiða átta ár í röð. 

Hamilton mætir hungraður í sigur með þessum nýja samningi við Mercedes en tímabilið 2022 var fyrsta tímabilið sem Hamilton fór í gegnum án þess að vinna kappakstur. 

Hann og þýska goðsögnin Michael Schumacher tróna ofar öðrum ökumönnum í sögu Formúlu 1 með sjö heimsmeistaratitla hvor, met sem Hamilton sækist nú í að eiga einn.

„Við höfum aldrei verið eins hungruð í að vinna,“ segir Hamilton í fréttatilkynningu Mercedes. „Við hölfum áfram að elta okkar drauma, höldum áfram að berjast sama hvað áskorun við fáum í hendurnar og við munum vinna sigra á nýjan leik.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×